Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna vatnsverndarsvæðis í Áshildarmýri
26. febrúar 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 25. febrúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. janúar 2025.
Í breytingunni felst að afmarkað er nýtt vatnsverndarsvæði VG1 og VF1 í Áshildarmýri. Vatnsbólið sem vatnsverndarsvæðið tekur til er í Flóahreppi.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.