Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar vegna breytingar á ÍB9, Teiga- og Klappahverfi
2. apríl 2025
Skipulagsstofnun staðfesti 1. apríl 2025 óverulegabreytingu á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 8. janúar 2025.
Í breytingunni felst að gerð er breyting á skilmálum fyrir ÍB9, þar sem heimilað er að byggja fjölbýlishús auk einbýlis- og parhúsa. Fjöldi íbúða er óbreyttu , eða alls 390 íbúðir á svæðinu.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.