Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ27 í landi Brekkna og Áss
23. janúar 2025
Skipulagsstofnun staðfesti 23. janúar 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. nóvember 2024.
Í breytingunni felst að reitur VÞ27 í landi Brekkna og Áss er stækkaður um 0,6 hektara eða úr 2,8 í 3,4 hektara. Auk þess er byggingarmagn aukið um 1600 m2 úr 6400 m2 í 8000 m2.
Málsmeðferð var samkvæmt a 2). mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.