Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Langanesbyggðar vegna verslunar og þjónustu í landi Tungusels

15. apríl 2025

tungusel langanesbyggd

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. apríl 2025, breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. janúar 2025.

Í breytingunni felst skilgreining 2,1 ha svæðis fyrir verslun og þjónustu VÞ2 en reisa á veiðihús með gisti- og veitingaþjónustu. Landbúnaðarsvæði minnkar sem þessu nemur. Þá verður tveimur nýjum efnistökusvæðum bætt við vegna framkvæmdar en áætlað er að vinna allt að 25.000 m³ af efni.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram