Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar
27. febrúar 2025
Skipulagsstofnun staðfesti, 26. febrúar 2025, breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 4. september 2024.
Í breytingunni felst 6 ha stækkun íbúðarbyggðar ÍB2 með áfanga III í Hagahverfi í landi Glæsibæjar og minnkar landbúnaðarsvæði sem því nemur. Gert er ráð fyrir að fjölga lóðum úr 30 í allt að 44 lóðir og fjölga íbúðum úr 30 í allt að 74 íbúðir.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.