Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Helgafellssveitar vegna breyttrar landnotkunar í landi Vigraholts

3. mars 2025

vigraholt helgafellssveit

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. mars 2025, breytingu á Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 sem samþykkt var í bæjarstjórn 26. september 2024.

Í breytingunni felst stækkun á frístundabyggð í 92,1 ha, og fækkun frístundahúsa úr 93 í 33, skilgreining 16,2 ha íbúðarbyggðar með 10 lóðum og 25,1 ha verslunar- og þjónustusvæðis með 3 lóðum og heimildum fyrir baðlón og 170 gistirúm. Landbúnaðarsvæði minnkar þessu til samræmis. Jafnframt er gert ráð fyrir nýjum aðkomuvegi og færslu á reiðstíg meðfram veginum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram