Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna miðsvæðis á Suðurhöfn og hafnarsvæðis á Hamarshöfn.
20. desember 2024
Skipulagsstofnun staðfesti, 20. desember 2024, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 6. nóvember 2024.
Í breytingunni felst að marka stefnu um 5,3 ha svæði fyrir samfélagsþjónustu S42 á Suðurhöfn vegna uppbyggingar skóla, allt að 30.000 m2, og við það minnkar miðsvæði M7 að sama skapi. Jafnframt stækkar hafnarsvæði H6 úr 1 ha í 1,5 ha við Hamarshöfn.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.