Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna Vaðholts 2, breytt landnotkun
10. apríl 2025
Skipulagsstofnun staðfesti 10. apríl 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. mars 2025.
Í breytingunni felst að frístundabyggð F66 í landi Ormsstaða minnkar um 4 ha og verður landbúnaðarsvæði L1, sem stækkar sem því nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.