Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna verslunar og þjónustu í Síðuhverfi
18. febrúar 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 18. febrúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. desember 2024.
Í breytingunni felst að 3,9 ha svæði við Austursíðu er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði VÞ24 en athafnasvæði AT7 sem fyrir er minnkar úr 14,1 ha í 10,2 ha.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.