Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna stækkunar íþróttasvæðis í Hlíðarfjalli
15. apríl 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 15. apríl 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. mars 2025.
Breytingin felst í að íþróttasvæði ÍÞ10 stækkar um 8,5 ha til austurs. Fyrirhuguð er uppbygging sleðabrautar á svæðinu.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.