Fara beint í efnið
Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Seyðisfjarðar vegna snjóflóðavarnarkeilna norðan Öldugarðs, Múlaþingi

7. desember 2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Seyðisfjarðar vegna snjóflóðavarnarkeilna norðan Öldugarðs, Múlaþingi

Skipulagsstofnun staðfesti, 7. desember 2023, breytingu á Aðalskipulagi Seyðisfjarðar 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. nóvember 2023.

Í breytingunni felast áform um uppbyggingu fimm varnarkeilna norðan við snjóflóðavarnargarðinn Öldugarð sem nú er í framkvæmd. Opið svæði til sérstakra nota stækkar úr 4 ha í allt að 6 ha. Óbyggt svæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram