Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Fljótsdalshéraðs vegna efnistökusvæðis á Kiðueyri í landi Ketilsstaða, Múlaþingi
21. maí 2024
Skipulagsstofnun staðfesti, 17. maí 2024, breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. mars 2024.
Í breytingunni felst að á sveitarfélagsuppdrátt B er bætt við punkttákni fyrir nýtt efnistökusvæði E172. Heildarflatarmál fyrirhugaðs efnistöku- og haugsvæðis er 22.000 m2 og áætlað er að efnistaka verði samtals u.þ.b. 24.000 m3 á næstu þremur árum.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.