Skipulagsdagurinn 2023 - Upptökur og glærur
28. október 2023
Skipulagsdagurinn, árlegt málþing Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um umhverfis- og skipulagsmál, fór fram þann 19. október í Grósku. Þar voru flutt áhugaverð erindi og fóru fram góðar umræður. Fundinum var skipt í fjórar málstofur, sem voru endurskoðun landsskipulagsstefnu, uppbygging húsnæðis og gæði byggðar, aðlögun að loftslagsbreytingum og skipulag á miðhálendi Íslands. Hér má finna upptökur frá fundinum og einnig glærusýningar frummælenda.
Dagskrá
Fyrir hádegi
Opnun fundarstjóra, Ari Trausti Guðmundsson og Sigurborg Haraldsdóttir. Upptaka
Ávarp, Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra. Upptaka Glærur
Ávarp, Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar. Upptaka
Endurskoðun landsskipulagsstefnu
Endurskoðun landsskipulagsstefnu - umfang og áherslur. Hólmfríður Bjarnadóttir, skrifstofustjóri húsnæðis- og skipulagsmála hjá innviðaráðuneyti. Upptaka Glærur
Pallborðsumræður: Guðrún Lára Sveinsdóttir, sviðsstjóri aðalskipulags hjá Skipulagsstofnun, Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi ísle
nskra sveitarfélaga og Vigfús Þór Hróbjartsson, skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu. Upptaka
Uppbygging húsnæðis og gæði byggðar
Einn ferill húsnæðisuppbyggingar. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Upptaka Glærur
Þróun nýs hverfis á Keldnalandi - áherslur og nálgun. Hrafnkell Á. Proppé, skipulagsfræðingur hjá Urbana. Upptaka Glærur
Pallborðsumræður: Auður D. Kristinsdóttir, skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar, Björn Axelsson, skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar og Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsfulltrúi Akureyrarbæjar. Upptaka
Eftir hádegi
Ávarp, Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Upptaka
Aðlögun að loftslagsbreytingum
Aðlögun íslenskra sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga - hvers vegna, hvernig og hvenær? Anna Hulda Ólafsdóttir, fyrir hönd Ragnhildar Friðriksdóttur, umhverfisfræðings hjá Byggðastofnun. Upptaka Glærur
Stöðumat og áskoranir varðandi endurmótun á tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár. Elísabet Pálmadóttir, teymisstjóri náttúruvár, vöktunar og rannsókna hjá umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneyti. Upptaka Glærur
Pallborðsumræður: Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofunni, Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings og Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Nátturuhamfaratryggingar Íslands. Upptaka
Skipulag á miðhálendi Íslands
Staða og þróun skipulags á hálendinu. Ester Anna Ármannsdóttir, sviðsstjóri stefnumótunar og miðlunar hjá Skipulagsstofnun. Upptaka Glærur
Pallborðsumræður: Anna Dóra Sæþórsdóttir, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands (Glærur), Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra, Inga Dóra Hrólfsdóttir, sviðsstjóri náttúruverndar og grænna áfangastaða hjá Umhverfisstofnun, Kristinn Guðnason, bóndi í Árbæjarhjáleigu í Holtum og Regína Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá forsætisráðuneyti. Upptaka
Samantekt, Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar. Upptaka