Lagning jarðstrengs um Berufjarðarleirur, Múlaþingi
21. mars 2025
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning jarðstrengs um Berufjarðarleirur skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til og með 21. apríl 2025.