Fara beint í efnið
Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Kynningarfundur um Vindorkugarð í Garpsdal

3. júlí 2024

Mat á umhverfisáhrifum - Kynning umhverfismatsskýrslu

garpsdalur-yfirlitsmynd

Kynningarfundur 4. júlí

Vakin er athygli á kynningarfundi þar sem kynntar verða niðurstöður umhverfismatsskýrslu Vindorkugarðs í Garpsdal.

Fundurinn verður haldin í Gamla Kaupfélagshúsinu í Krókfjarðarnesi í Reykhólahreppi, fimmtudaginn 4. júlí kl. 18:00.

Fyrir þá sem ekki sjá sér fært að mæta þá verður opnað Virtual Room eftir kynninguna sem verður opið þar til frestur til athugasemda rennur út. Í Virtual Room getur þú skoðað allt efni umhverfismatsins og horft á upptöku af kynningunni. Virtual Room verður aðgengilegt frá heimasíðu EM Orku frá og með 8. júlí og þar til athugasemdafrestur rennur út.

Frestur til að skila athugasemdum er til 19. ágúst.

Kynningunni verður ekki streymt, en upptaka verður gerð aðgengileg í Virtual Room.

Fjarfundarkynning (Webinar) verður einnig haldin í vikunni 8. - 12. júlí. Nákvæm dagsetning auglýst síðar.

Hægt er að nálgast gögn málsins og skila inn athugasemdum hér á Skipulagsgátt.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram