Fara beint í efnið
Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Breyting á skipulagsreglugerð

8. ágúst 2024

Reglugerð um breytingu á skipulagsreglugerð nr. 90/2013 tók gildi þann 26. júní síðast liðinn.

mastur

Reglugerð um breytingu á skipulagsreglugerð nr. 90/2013 tók gildi þann 26. júní síðast liðinn. Breytingin felur fyrst og fremst í sér innleiðingu á nýjum ákvæðum um gerð raflínuskipulags sem sett eru fram í nýjum kafla, 7. kafla, sem fjallar um undirbúning og gerð raflínuskipulags og störf raflínunefndar. Eru þessi ákvæði til samræmis við breytingar á skipulagslögum nr. 35/2023 sem tóku gildi í nóvember og fela í sér heimild til gerðar svonefnds raflínuskipulags, þar sem tekin ein sameiginleg skipulagsákvörðun, fyrir raflínur sem tilheyra flutningskerfi raforku.

Reglugerðin um breytingu á skipulagsreglugerð kveður jafnframt á um tilteknar aðrar nauðsynlegar breytingar á skipulagsreglugerð, fyrst og fremst til að samræma ákvæði hennar nýjum lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, sem komu í stað laga um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, og laga um umhverfismat áætlana, nr. 105/2006.

Reglugerð um breytingu á skipulagsreglugerð nr. 90/2013

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram