Bætt aðgengi að landupplýsingum og stafrænum gögnum
30. janúar 2025
Á nýjum vef Skipulagsstofnunar hefur aðgengi að landupplýsingagögnum verið einfaldað til muna.
Á síðu stafræns skipulags og landupplýsinga má nú á einum stað nálgast allar upplýsingar um stafrænt skipulag og finna hlekki á vefsjár, vefþjónustur, gagnalýsingar og leiðbeiningar auk upplýsinga um önnur skipulagstengd gögn. Eftirleiðis verða ný landupplýsingagögn og uppfærslur á eldri gögnum færð þar inn.