Fara beint í efnið
Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Skýrsla um greiningu valkosta og umhverfismat

5. ágúst 2014

Skýrsla
um greiningu valkosta og umhverfismat

Skýrslan er liður í vinnuferli við mótun Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og er jafnframt unnin samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana. Tilgangurinn er að greina og bera saman mögulega valkosti fyrir einstök viðfangsefni landsskipulagsstefnu.

Skipulagsstofnun hefur tekið saman skýrsluna „Landsskipulagsstefna 2015-2026 – Greining valkosta og umhverfisáhrifa“. Skýrslan er liður í vinnuferli við mótun Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og er jafnframt unnin samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana. Tilgangurinn er að greina og bera saman mögulega valkosti fyrir einstök viðfangsefni landsskipulagsstefnu. Skilgreining valkosta og umhverfismat þeirra var unnið af faghópum Skipulagsstofnunar og í skýrslunni eru dregnar saman helstu niðurstöður úr þeirri vinnu.

Landsskipulagsstefna – Greining valkosta og umhverfisáhrifa (pdf útgáfa)

Efni skýrslunnar verður kynnt og rætt á kynningar- og samráðsfundi 15. ágúst næstkomandi á Hótel Reykjavík Natura kl. 14.00. Einnig er hægt að koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum við skýrsluna á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is eða hér á heimasíðu landsskipulagsstefnu fram til 8. september næstkomandi. Athugasemdum verður ekki svarað sérstaklega en þær nýttar við áframhaldandi vinnu við útfærslu landsskipulagsstefnu. Framkomnar athugasemdir verða birtar í heild sinni á vefnum.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram