Sjúklingatrygging 2025
6. febrúar 2025
Upplýsingabréf sem send hafa verið sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki


Athugið að frestur ábyrgðarmanna rekstrar til þess að ganga frá skráningu vegna sjúklingatryggingar í gagnagátt (gg.sjukra.is) hefur að sinni verið framlengdur til 28. febrúar 2025. Frestur til þess að ganga frá greiðslu iðgjalds hefur verið framlengdur með reglugerð heilbrigðisráðherra og er hann nú til 30. apríl 2025.
Samkvæmt nýjum lögum um sjúklingatryggingu nr. 47/2024 flyst sjúklingatrygging sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks frá vátryggingafélögum til Sjúkratrygginga. Breytingin gildir um tjón sem verða 1. janúar 2025 og síðar.
Hér í viðhengi er að finna þrjú bréf með leiðbeiningum sem send hafa verið sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki með rafrænum hætti. Bréfin voru birt 21. nóvember 2024, 17. desember 2024 og 10. janúar 2025. Þess er óskað að sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk kynni sér bréfin vel.
Upphæð iðgjalds sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks hefur verið ákveðið með reglugerð heilbrigðisráðherra.