Af gefnu tilefni vegna umfjöllunar um farmiðakaup
28. janúar 2025
Sjúkratryggingar vilja vekja athygli á því að mikil misskilnings virðist gæta um farmiðakaup Sjúkratrygginga.
Í fjölmiðlaumfjöllun hefur verið dregið fram að Sjúkratryggingar séu stærsti kaupandi flugsæta. Gefið er í skyn að hagsmunir starfsmanna vegna vildarpunkta hafi mögulega haft áhrif á þessi kaup.
Í þessu sambandi er nauðsynlegt að vekja athygli á því að nær öll kaup Sjúkratrygginga eru vegna ferða sjúklinga sem leita sér heilbrigðisþjónustu til annarra landa á kostnað Sjúkratrygginga. Þessir sjúklingar hafa ýmsar sérþarfir sem taka þarf tillit til. Það er því ekki hægt að meta kaup Sjúkratrygginga á þessari þjónustu á sömu forsendum og gilda um ferðir ríkisstarfsmanna.