Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Sjúklingatrygging 2025

24. janúar 2025

Upplýsingabréf sem send hafa verið sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki

Sjúkratryggingar lógó

Athugið að frestur ábyrgðarmanna rekstrar til þess að ganga frá skráningu vegna sjúklingatryggingar í gagnagátt (gg.sjukra.is) hefur að sinni verið framlengdur til 7. febrúar 2025.

Samkvæmt nýjum lögum um sjúklingatryggingu nr. 47/2024 flyst sjúklingatrygging sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks frá vátryggingafélögum til Sjúkratrygginga. Breytingin gildir um tjón sem verða 1. janúar 2025 og síðar.

Hér í viðhengi er að finna þrjú bréf með leiðbeiningum sem send hafa verið sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki með rafrænum hætti. Bréfin voru birt 21. nóvember 2024, 17. desember 2024, 10. janúar 2025 og 15.janúar 2025. Þess er óskað að sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk kynni sér bréfin vel.

Upphæð iðgjalds sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks hefur verið ákveðið með reglugerð heilbrigðisráðherra.