Gerður hefur verið nýr samningur um hjólastóla og gönguhjálpartæki
14. janúar 2025
Sjúkratryggingar stóðu fyrir útboði á rammasamningi vegna innkaupa á handknúnum hjólastólum, rafknúnum hjólastólum og gönguhjálpartækjum fyrir sjúkratryggða einstaklinga í lok síðasta árs.
Nýir samningar á grundvelli útboðsins tóku gildi 1. desember síðast liðinn og hafa Sjúkratryggingar birt í kjölfarið nýtt upplýsingahefti og vörulista.
Helstu breytingar frá fyrra útboði eru þær að nú eru hjólastólar allir saman í einum samningi, áður var sér samningur um rafknúna hjólastóla. Þeim fyrirtækjum sem Sjúkratryggingar gera samninga við hefur fjölgað úr fjórum í sjö.
Í vörulistanum má finna yfirlit yfir þær tegundir sem Sjúkratryggingar hafa gert samning um kaup á frá 1. desember 2024 til 30. nóvember 2026.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Sjúkratrygginga fyrir tæknileg hjálpartæki: Upplýsingahefi um samninga og vörulista.