Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Rafrænar umsóknir um þátttöku Sjúkratrygginga í tannlækningum

25. ágúst 2023

Sjúkratryggingar hafa sett upp vefþjónustur til að taka rafrænt á móti eftirtöldum umsóknum um þátttöku Sjúkratrygginga í tannlækningum.

Tannlæknir - Sjúkratryggingar
  • Umsókn um endurgreiðslu á kostnaði vegna tannlækninga (IV.kafli)

  • Umsókn um endurgreiðslu á kostnaði vegna tannréttinga (IV. kafli)

  • Umsókn um þátttöku í kostnaði vegna tannlækninga (II. – III. kafli)

Nú geta þjónustuaðilar tölvukerfa tannlækna óskað eftir gögnum um þessar vefþjónustur til að aðlaga sín kerfi að nýju rafrænu umsóknunum, með því að hafa samband við Upplýsingatæknisvið Sjúkratrygginga á netfangið hjalp@sjukra.is