Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Skráningarsíða fyrir umráðamenn dróna

9. nóvember 2022

Með væntanlegri innleiðingu nýrrar reglugerðar um starfrækslu dróna myndast krafa um að umráðendur dróna skrái sig hjá flugmálayfirvöldum.

mynd af dróna

Samgöngustofa hefur nú opnað skráningarsíðuna www.flydrone.is þar sem umráðendur dróna hafa þann kost að skrá sig, kynna sér námsefni og taka próf í undirflokki A1/A3 fyrir opna flokkinn. Eftir að hafa lokið prófi með viðunandi árangri mun viðkomandi fá útgefið hæfnisvottorð sem gildir í öllum aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Skráningargjaldið er byggt á útseldri tímavinnu Samgöngustofu og er kr. 5.500 fyrir hverja skráningu.

Eftir skráningu er hægt að taka A1/A3 prófið án endurgjalds.