Réttindi fatlaðs fólks
Fatlað fólk nýtur sömu almennu réttinda og sama grundvallarfrelsis og annað fólk. Það er jafngildir borgarar og skal njóta jafnrar stöðu fyrir lögum, jafns réttar, jafns aðgengis og jafnrar þátttöku á öllum sviðum lífsins, án mismununar af nokkru tagi. Fatlað fólk nýtur sem dæmi jafnrar réttinda til
að kjósa
að kaupa og eiga húseign
að mennta sig
að sækja almenna þjónustu og njóta hennar af sömu gæðum og annað fólk
Ýmsar aðstæður geta valdið því að réttur fatlaðs fólks er skertur. Hægt er að grípa til ýmissa ráðstafana til að leiðrétta og koma í veg fyrir að það gerist. Réttindi fatlaðs fólks grundvallast fyrst og síðast á því að það sé almennir borgarar með jafna stöðu og jafnan rétt og ófatlað fólk.
Skerðing fólks og aðstæður geta einnig myndað sérstakan rétt til ákveðinnar þjónustu eða stuðnings, til dæmis stoðþjónustu, hjálpar- og stuðningstækja eða lífeyris.