Fara beint í efnið
Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða
Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða

Náttúruhamfaratrygging Íslands

Snjóflóð á Neskaupstað

5. apríl 2023

Starfsmenn NTÍ hafa staðið í ströngu síðustu daga við að skoða og meta tjón sem snjóflóðin á Neskaupstað hafa valdið á húseignum og lausafé.

Neskaupstaður

Áhersla hefur verið lögð á að flýta mati og uppgjöri í samvinnu við eigendur eignanna. Uppgjöri er nú lokið á nánast öllum lausafjártjónum að frátöldum munum í einni geymslu þar sem eigandi var fjarverandi og gat ekki gefið matsmönnum aðgang að henni til tjónamats. Matsmenn frá Verkís og Eflu hafa annast mat fyrir hönd NTÍ á húseignum og eru nú langt komnir með matsgerðir fyrir þær 10 húseignir sem urðu fyrir skemmdum í fjölbýlishúsunum að Starmýri 17-19 og Starmýri 21-23 og verður niðurstaða þeirra kynnt eigendum í dag, 5. apríl. Auk fjölbýlishúsanna í Starmýri varð minniháttar tjón á tveimur einbýlishúsum við Mýrargötu og mun tjónamat á þeim liggja fyrir á allra næstu dögum.

Nokkur umræða hefur verið um eigin áhættu tjónþola sem þykir há fyrir þá sem urðu fyrir tjóni. Mikilvægt er að hafa í huga að lægri eigin áhætta kallar á hærri iðgjöld, auk þess sem mikil áhætta væri tekin með sjóðinn ef eigin áhættan væri mjög lág. Kostnaður við afgreiðslu minniháttar tjóna, sem engu að síður eru stjórnsýslumál, yrði umtalsverður. Þá væri hætta á að verulega gengi á sjóð stofnunarinnar í atburði eins og jarðskjálfta í útjaðri höfuðborgarsvæðisins, þar sem fjöldamörg hús gætu orðið fyrir 2-400 þúsund króna tjóni vegna minniháttar skemmda í innanstokksmunum eða rispum á gólfefnum sem dæmi.   

Þá er vert að geta þess að breytingin sem gerð var í síðustu lagabreytingu úr 5% í 2% og hækkun eigin áhættu úr 85 þúsund í 400 þúsund er til hagsbóta fyrir alla þá sem verða fyrir tjóni sem er hærra en 8 milljónir á húseign og 4 milljónir á lausafé.   

Gerð hefur verið samantekt á meðal eigin áhættu fyrir innbú og lausafé í þessum atburði. Þar kemur í ljós að eigin áhættan er að meðaltali 4,7%, þar sem hlutfall eigin áhættu nam 11,7% þar sem hún var hæst en 2,2% þar sem hún var minnst. Hlutfall eigin áhættu er lægst hjá þeim sem urðu fyrir mestu tjóni, en hæst hjá þeim sem urðu fyrir minnstu tjóni.  

Starfsmenn NTÍ verða á Neskaupsstað til 17:00 í dag og munu taka á móti eigendum ef þeir hafa einhverjar spurningar eða athugasemdir við mötin sem kynnt verða í dag. 

Fulltrúar NTÍ munu koma aftur á Neskaupsstað í vikunni eftir páska til að klára útistandandi mál sem ekki næst að ljúka núna fyrir páskahátíðina.  

Hafðu samband

Sími: 575 3300

Netfang: nti@nti.is

Opnunartími

Mánudaga - fimmtudaga:
9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Heimilisfang

Hlíðarsmári 14

201 Kópavogur