Söngvakeppni á Skógardeginum mikla sem fagnar 20 ára afmæli í ár
18. júní 2024
Tuttugu ár eru nú frá því að Skógardagurinn mikli var haldinn í fyrsta sinn. Dagskráin hefst föstudaginn 21. júní með undanúrslitum í söngvakeppni sem efnt var til í tilefni afmælisins og svo verður keppt til úrslita á laugardaginn. Að auki verður fjölbreytt dagskrá, meðal annars hin árlega Íslandsmeistarakeppni skógarhöggsmanna, veisla í skóginum, skemmtidagskrá á sviði, leikir og fleira.
Skógardagurinn mikli er árlegur fjölskylduviðburður sem haldinn er í þjóðskóginum Hallormsstaðaskógi um Jónsmessu. Snar þáttur í hátíðinni er Íslandsmeistaramótið í skógarhöggi sem laðar að sér þátttakendur víðs vegar að af landinu. Fyrir utan fjölbreytta dagskrá á svið og ýmiss konar leiki og skemmtun verður hin rómaða grillveisla á sínum stað þar sem gestir gæða sér heilgrilluðu nauti, safaríku lambakjöti og bragðmiklum pylsum. Að sjálfsögðu verður líka hægt að hressa sig á ekta skógarmannakaffi, ketilkaffi lagað yfir opnum eldi.
Í ár fer Skógardagurinn mikli fram 22. júní en upphitun kvöldið áður. Í tilefni af 20 ára afmæli Skógadagsins mikla í ár hefur verið efnt til söngvakeppni sem lýkur á aðalhátíðinni þar sem sigurlagið verður kynnt og sömuleiðis úrslit í Íslandsmeistaramótinu í skógarhöggi. Kosning fer fram á kosningasíðu sem kynnt verður með QR-kóða á hátíðarsvæðinu.
Upphitun fyrir Skógardaginn
Föstudaginn 21. júní
18:00 Dagskrá hefst.
18:30 Lagakeppni, lögin flutt á sviðinu.
19:00 Esther Jökulsdóttir, söngur.
19:30 Undanúrslit í lagakeppni – Hvaða þrjú lög komast áfram?
Skógardagurinn mikli
Laugardaginn 22. júní
12:00 Skógarhöggskeppni, fyrri hluti hefst í skóginum.
Náttúruskólinn með ýmsar þrautir og leiki fyrir börn.
13:00 Formleg dagskrá hefst í Mörkinni.
Skemmtidagskrá á sviði.
Esther Jökulsdóttir, söngur.
Guðmundur Gíslason, söngur.
Lagakeppni úrslit.
Lokagreinar í skógarhöggi og Íslandsmeistarinn krýndur.
Félag nautgripabænda á Héraði og Fjörðum bjóða upp á heilgrillað naut og með því.
Ketilkaffi, lummur, pylsur í hundraðavís og ormabrauð að hætti skógarmanna.
Félag sauðfjárbænda á Héraði og Fjörðum býður upp á grillað lambakjöt.
Krökkum boðið á hestbak.
16:00 Allir fara heim saddir og kátir.