Skógurinn okkar á Skógardeginum mikla
25. júní 2024
Lagið Skógurinn okkar eftir Hrein Halldórsson varð hlutskarpast í úrslitum lagakeppni Skógardagsins mikla sem voru meðal dagskráratriða á hátíðinni.
Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, setti Skógardaginn mikla að þessu sinni. Að sögn skipuleggjenda fór dagurinn mjög vel fram. Náttúruskólinn bauð upp á margs konar leiki fyrir börn, Ellen á Gíslastöðum teymdi undir börnum sem vildu komast á hestbak og margt fleira var til skemmtunar. Esther Jökulsdóttir og fylgdarsveinar voru með tónlistaratriði á sviði og sömuleiðis fluttu Guðmundur R. og Jón Hilmarsson tónlistaratriði á sviði.
Í ár var efnt til lagakeppni í tilefni af því að nú var Skógardagurinn haldinn í tuttugasta skipti. Undanúrslit voru í aðdraganda Skógardagsins mikla á föstudag en úrslitin á laugardag.
Hlutskarpast varð lagið Skógurinn okkar eftir Hrein Halldórsson.
Í öðru sæti lenti lag sem Arnar Freyr Halldórsson Warén samdi ásamt Sigríði Friðnýju Halldórsdóttur og kallast einfaldlega Skógardagurinn mikli.
Í þriðja sæti varð lagið Á skógardaginn eftir Skógarpúkana.
Íslandsmeistaramótið í skógarhöggi fór fram einnig á Skógardeginum mikla.
Hlutskarpastur varð Bjarki Sigurðsson, verkstjóri hjá Landi og skógi Hallormsstað sem keppti með Husquarna-keðjusög.
Annar varð Mates Ciselar frá Skógarmönnum á Akureyri með Stihl-sög.
Þriðji varð Sigfús Jörgen Oddsson sem keppti fyrir hönd sauðfjárbænda með Husquarna-sögina sína.
Nautakjötið, lambakjötið og pylsurnar runnu vel niður að vanda ekki síður en ketilkaffið og eldbakaðar lummurnar sem sömuleiðis voru á boðstólum að hætti skógarmanna.
Að Skógardeginum mikla standa Félag skógarbænda og Land og skógur Hallormsstað ásamt Félagi nautgripabanda á Héraði og Fjörðum og Félagi sauðfjárbænda á Héraði og Fjörðum.
Meðfylgjandi myndir tók Anna Jakobs á hátíðinni.
Ungir gestir kljúfa eldivið.
Listaverk unnin á staðnum
Frá hátíðarsvæðinu þar sem skógarhöggskepnin fór fram.
Skógarpúkarnir sem lentu í þriðja sæti í lagakeppninni.
Lummur steiktar yfir eldi.