Þessi frétt er meira en árs gömul
Plöntusjúkdómafræðingur óskast
24. ágúst 2023
Mógilsá, rannsóknasvið Skógræktarinnar, óskar að ráða til starfa sérfræðing í plöntusjúkdómum til að sinna rannsóknum og vöktun á plöntusjúkdómum, veita upplýsingar og ráðgjöf um slík efni og vinna að öðrum faglegum verkefnum. Umsóknarfrestur er til og með 22. september. Sótt er um á Starfatorgi.
Skógræktin leitar að öflugu starfsfólki til að vinna að uppbyggingu skógarauðlindar á Íslandi, vernd og friðun skóga og til að efla hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri nýtingu skóga. Leitað er að plöntusjúkdómafræðingi á Mógilsá, rannsóknasviði Skógræktarinnar, en starfið er auglýst án staðsetningar.
Hlutverk og markmið:
Rannsóknir og vöktun á plöntusjúkdómum
Upplýsinga- og ráðgjöf um plöntusjúkdóma
Önnur verkefni sem næsti yfirmaður felur viðkomandi
Hæfniskröfur:
MS-próf í plöntusjúkdómum eða skyldum greinum er skilyrði
Almenn tölvukunnátta er skilyrði; reynsla í tölfræði og notkun tölfræðiforrita er æskileg
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frumkvæði í starfi
Ríkir samskiptahæfileikar og þjónustulund
Góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli er skilyrði
Góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli er æskileg
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi ogskyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr 70/1996.
Sótt er um starfið á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til og með 22. sept. 2023.
Rannsóknasvið Skógræktarinnar er með meginstarfstöð á Mógilsá en starfið er án staðsetningar þar sem Skógræktin er með starfstöðvar í öllum landshlutum.
Nánari upplýsingar veitir
Edda Sigurdís Oddsdóttir, sviðstjóri rannsóknasviðs Skógræktarinnar - edda@skogur.is -
Frétt: Pétur Halldórsson