Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Landssöfnun á birkifræi hófst í Reykhúsaskógi

17. september 2024

Átakið Söfnum og sáum birkifræi hófst í gær á degi íslenskrar náttúru, 16. september, með því að Lionsklúbburinn Sif í Eyjafjarðarsveit stóð fyrir söfnun í Reykhúsaskógi í Eyjafjarðarsveit. Þetta var í fjórða sinn sem klúbburinn efnir til slíks viðburðar og leggur sitt af mörkum til átaksins. Fræsöfnunarfólkið gat svo gætt sér á veitingum í Hælinu í Kristnesi sem hafði sérstaklega opið að þessu tilefni.

Anna Blöndal tínir birkifræ í Reykhúsaskógi á degi íslenskrar náttúru. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Vel viðraði til fræsöfnunar í Reykhúsaskógi. Fræið var vel þroskað á trjánum og mjög mikið af því. Söfnunarfólk hafði á orði að það þyrfti varla að ganga á milli trjáa því auðvelt væri að fylla heila söfnunaröskju með fræi af einu tré. Sömu sögu er að segja víða um land. Gott fræár er á birki víðast hvar og fólk er hvatt til að nýta tækifærið og stuðla að útbreiðslu birkis, hvort sem er með því að safna og skila fræinu í Bónus-verslunum, Olís-stöðum og starfstöðvum Lands og skógar eða með því að sjá sjálft um að sá fræinu þar sem æskilegt er að birkið geti vaxið upp og dreift áfram úr sér.

Eyfriskt birki hlaðið fræi. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Anna Blöndal var ein þeirra sem komu í Kristnesskóg til að tína fræ. Hún er reyndar ekki félagi í Lionsklúbbnum Sif heldur í Lionsklúbbnum Ylfu á Akureyri. Hún segir að Lionshreyfingin sé mjög sterk á Eyjafjarðarsvæðinu og margir öflugir klúbbar starfandi sem gjarnan megi vinna enn meira saman. Einkenni hreyfingarinnar sé að gera samfélaginu og umhverfinu gott og fræsöfnunarátakið falli vel að þeim markmiðum.

Lionshreyfingin er komin á annað árhundraðið, segir Anna, stofnuð í Chicago 1917. Árið 1951 var fyrsti klúbburinn stofnaður á Íslandi og framan af störfuðu félögin að mestu á heimavelli. Eftir að alþjóðlegur hjálparsjóður Lions var stofnaður 1968 var fyrsta meiri háttar framlagið sent til Íslands eftir Vestmannaeyjagosið. Auk framlags úr sjóðnum sendu Lionsklúbbar víða um heim framlög og samanlagt dugði styrkurinn fyrir innbú og búnað í heilt sjúkrahús. Þannig segir Anna að samtakamátturinn geti gert kraftaverk þótt hver einstaklingur geti kannski ekki gert mikið. Það gildi sannarlega um íslenska birkið. Með samtakamætti getum við gert mikið til að endurheimta birkiskógana okkar sem hurfu. Framlag hvers og eins okkar geti því skipt miklu máli. Hún hvetur aðra Lionsklúbba um allt land til að taka Sif í Eyjafjarðarsveit sér til fyrirmyndar og standa fyrir söfnun og sáningu á birkifræi.

Að átakinu stendur Land og skógur í samvinnu við skógræktarfélögin í landinu, Lionshreyfinguna og fleiri samtök. Bónus og Olís styðja við átakið með því að útvega aðstöðu til að taka á móti fræi og Prentmet Oddi sér um framleiðslu á söfnunaröskjum og -kössum. Engin tímamörk eru á átakinu. Ef tíðin er gott má safna birkifræi langt fram á vetur svo lengi sem það hangir á trjánum.

Gangi ykkur vel að safna og sá birkifræi!

María Pálsdóttir á Hælinu, setri um sögu berklanna,  og Hrönn Arnheiður Jóhannsdóttir Lionskona. Ljósmynd: Pétur Halldórsson