Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Þessi frétt er meira en árs gömul

Flett í brúargólf

6. júlí 2012

Starfsmenn Vesturlandsdeildar Skógræktar ríkisins hafa á undan förnum vikum unnið hörðum höndum við aðfletta timbri sem  verður notað í dekkið á brúnni  yfir ginnungagapið sem myndaðist í Almannagjá á Þingvöllum.

Flett í brúargólf

Starfsmenn Vesturlandsdeildar Skógræktar ríkisins hafa á undan förnum vikum unnið hörðum höndum við aðfletta timbri sem verður notað í dekkið á brúnni yfir ginnungagapið sem myndaðist í Almannagjá á Þingvöllum (sjá mynd á forsíðu Fréttablaðsins 3. júlí). Í þetta verkefni er notað sitkagreni úr Stálpastaðaskógi sem plantað var 1956 og er því 56 ára. Tvær sagir eru notaðar til verksins; gamla góða Wood Mizer bandsögin og svo nýja rammasögin sem var fengin frá Hallormstað í þetta verkefni.

Myndir og texti: Valdimar Reynisson