Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Stoðkerfismóttaka fyrir ófrískar konur

25. maí 2023

Aukin þjónusta við ófrískar konur

Kristín Júlía

Sjúkraþjálfarar og ljósmæður á Heilbrigðisstofnun Suðurlands hafa tekið höndum saman og bjóða nú uppá nýja þjónustu fyrir ófrískar konur. Konum er boðinn tími hjá sjúkraþjálfara á stoðkerfismóttöku sem hluti af mæðravernd.

Í mæðravernd skima ljósmæður fyrir áhættuþáttum stoðkerfisverkja í byrjun meðgöngu og bjóða tíma á stoðkerfismóttöku ef þess er þörf. Ef konu finnst ekki ástæða til að hitta sjúkraþjálfara í byrjun meðgöngu er hægt að óska eftir því þegar líður á meðgöngu. Þjónustan er í boði fyrir ófrískar konur í öllu umdæmi HSU.

Markmið þessarar þjónustu er forvörn. Fræðsla er forvörn og það er mikilvægt að eiga spjallið til dæmis varðandi breytingar á líkama, líkamsbeitingu, hjálpartækjum, hreyfingu, fyrri sögu um verki og/eða áhyggjur. Á stoðkerfismóttökunni eru gerðar skoðanir og próf til að reyna að finna orsök verkjanna og gefa viðeigandi ráð. Mikilvægt er að skima strax í upphafi meðgöngu svo hægt sé að veita meðferð eða ráðgjöf strax. Verkir á meðgöngu geta verið erfiðir og hamlandi fyrir konur bæði andlega og líkamlega. Verkir geta einnig leitt til þess að konur þurfi að hætta fyrr á vinnumarkaði og fara í snemmbúið veikindaleyfi en verkir geta einnig leitt til verri upplifunar á meðgöngunni.

Ef sjúkraþjálfari metur svo að konan þurfi meiri stuðning en hægt er að veita á stoðkerfismóttöku er skrifuð tilvísun svo konan geti leitað sér frekari aðstoðar sjúkraþjálfara.

Þessi þjónusta er liður í aukinni aðstoð við ófrískar konur og við fögnum þessari frábæru nýjung hjá HSU.

Kristín Júlía Hannesdóttir, sjúkraþjálfari á Heilbrigðisstofnun Suðurlands