Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Saga Hæstaréttar afhent forseta Íslands, forsætisráðherra og forseta Alþingis

11. janúar 2022

Í gær voru forseta Íslands, forsætisráðherra og forseta Alþingis afhent ritið Hæstiréttur í hundrað ár saga.

Ritið afhentu Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar, Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur og höfundur bókarinnar og Jón Sigurðsson forseti Hins íslenska bókmenntafélags sem gaf bókina út.

Myndirnar voru teknar við þetta tilefni.