Senda endurupptökubeiðni
Sending endurupptökubeiðna og annarra gagna til Endurupptökudóms
Öll gögn skulu berast til Endurupptökudóms bæði rafrænt og á pappír.
Endurupptökudómur tekur ekki við gögnum í gegnum tölvupóst.
Aðeins þarf að skila einu eintaki á pappír og pappírsgögn skulu send á heimilisfang Endurupptökudóms.
Gögn móttekin
Beiðni um endurupptöku telst móttekin þegar hún og meðfylgjandi gögn hafa borist með framangreindum hætti, þ.e. bæði rafrænt og á pappír.
Greinargerð og önnur gögn sem berast eftir þingfestingu máls teljast móttekin þegar Endurupptökudómur móttekur rafrænt eintak. Móttökukvittun sem hægt er að sækja í miðlarann jafngildir móttökustimpli.
Hér að neðan má finna hlekk með leiðbeiningum um hvernig rafræn gögn eru send í gegnum miðlara.