Fara beint í efnið
Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Reglur um þóknun til umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunum við fjárhagslega endurskipulagningu nr. 3/2020

Reglur dómstólasýslunnar nr. 3/2020

1. grein

Umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum við fjárhagslega endurskipulagningu, sem skipaður er samkvæmt 19. gr. laga nr. 57/2020 um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar, á rétt til þóknunar fyrir störf sín úr hendi skuldarans eftir því sem þeim miðar fram.

Tímagjald fyrir störf umsjónarmanns skal nema 18.500 krónum fyrir hverja klukkustund.
Með reikningi umsjónarmanns skal fylgja tímaskýrsla ásamt greinargóðu yfirliti um störf hans.

2. grein

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 19. gr. laga nr. 57/2020 um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Þær öðlast þegar gildi.

Þannig samþykkt í stjórn dómstólasýslunnar

8. júlí 2020.


Benedikt Bogason

formaður stjórnar dómstólasýslunnar.