Til að fá veittan íslenskan ríkisborgararétt þarf umsækjandi að uppfylla öll eftirtalin skilyrði.
Umsækjandi þarf að hafi fengið útgefið ótímabundið dvalarleyfi (áður búsetuleyfi) eða vera undanþeginn skyldunni til að hafa dvalarleyfi samkvæmt lögum um útlendinga.
Norrænir ríkisborgarar og ríkisborgarar EES/EFTA-ríkja eru undanþegnir skyldunni til að hafa dvalarleyfi samkvæmt núgildandi lögum.
Einstaklingar sem öðluðust rétt til dvalar án dvalarleyfis á grundvelli eldri laga halda þeim rétti.
Umsækjandi þarf að sanna með fullnægjandi hætti hver hann er með því að leggja fram afrit af vegabréfi. Afrit ákveðinna kennivottorða geta komið í stað afrits af vegabréfi, sjá nánar um hvaða kennivottorð það eru.
Umsækjandi þarf að hafa staðist próf í íslensku samkvæmt kröfum sem settar eru fram í reglugerð um próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu semur prófin og yfirfer þau en Mímir framkvæmir prófin.
Undanþágur frá íslenskuprófi
Útlendingastofnun má veita umsækjanda um íslenskan ríkisborgararétt undanþágu frá skilyrðinu um að hafa staðist próf í íslensku, ef talið er ósanngjarnt að gera þá kröfu. Það getur meðal annars átt við ef:
Umsækjandi er 65 ára eða eldri og hefur átt lögheimili hér á landi síðustu sjö ár áður en umsókn er lögð fram.
Umsækjandi getur staðfest með læknisvottorði eða öðrum viðeigandi vottorðum sérfræðings á viðkomandi sviði að honum sé ekki unnt að gangast undir próf af alvarlegum líkamlegum eða andlegum ástæðum.
Umsækjandi er í íslenskum grunnskóla eða undir grunnskólaaldri.
Umsækjandi getur staðfest með viðhlítandi vottorði frá íslenskum skóla að hann hafi færni sem samsvarar þeim kröfum sem gerðar eru í 4. grein reglugerðar um próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt.
Umsækjandi sem telur sig falla undir undanþágu verður að leggja fram gögn því til stuðnings, til dæmis læknisvottorð eða vottorð um skólagöngu.
Umsækjandi fær ekki veittan íslenskan ríkisborgararétt ef eitthvert eftirtalinna atriða á við um hann:
Árangurslaust fjárnám hefur verið gert hjá umsækjanda á síðastliðnum þremur árum.
Bú umsækjanda hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Umsækjandi er í vanskilum með skattgreiðslur.
Útlendingastofnun hefur heimild til að afla upplýsinga því til staðfestingar hjá CretidInfo, sjá persónuverndarskilmála.
Umsækjandi verður að sýna fram á að hann:
Hafi næg fjárráð til að geta séð fyrir sér sjálfur hér á landi.
Hafi ekki þegið fjárhagsaðstoð (framfærslustyrk) frá sveitarfélagi síðastliðin þrjú ár.
Hafi framfleytt sér með löglegum hætti hér á landi síðastliðin þrjú ár.
Upphæð framfærslu
Útlendingastofnun miðar við að mánaðarleg fjárráð umsækjenda séu að lágmarki:
239.895 krónur fyrir einstaklinga.
383.832 krónur fyrir hjón.
Viðmiðin samsvara grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar, sjá reglur um fjárhagsaðstoð.
Undanþágur frá skilyrðinu um sjálfstæða framfærslu
Barn, yngra en 18 ára, sem er á framfæri foreldris eða forsjáraðila sem búsettur er hérlendis, þarf ekki að sýna fram á framfærslu.
Námsmaður, á aldrinum 18 til 20 ára, sem býr hjá foreldri eða forsjáraðila, þarf aðeins að sýna fram á 50% af lágmarksframfærslu einstaklings eða 119.948 krónur á mánuði.
Vegna framfærsluskyldu á milli hjóna samkvæmt hjúskaparlögum er nægjanlegt að annar aðili í hjúskap sýni fram á næga framfærslu fyrir báða.
Athugið að sambúð er ekki jafngild hjúskap að þessu leyti. Ekki er framfærsluskylda á milli sambúðarfólks og þarf umsækjandi því að sýna fram á sjálfstæða framfærslu sé hann í sambúð.
Ættmenni (það er foreldri, afi, amma, langafi, langamma) eldra en 67 ára, sem er á framfæri barns eða barna sinna hér á landi, þarf ekki að sýna fram á sjálfstæða framfærslu.
Hvernig er sýnt fram á fullnægjandi framfærslu
Umsækjandi getur sýnt fram á að hann geti séð fyrir sér sjálfur með eftirfarandi hætti, heimilt er að styðjast við fleiri en einn þátt, til dæmis bæði launatekjur og eigið fé.
Launatekjur eða tekjur af sjálfstæðri atvinnustarfsemi
Umsækjandi sýnir fram á launatekjur með því að leggja fram staðgreiðsluyfirlit eða útgefna reikninga stimplaða af skattyfirvöldum. Umsækjandi getur einnig lagt fram frumrit ráðningarsamnings.
Ef umsækjandi er á framfæri annars einstaklings er heimilt að leggja fram fyrrgreind gögn þess einstaklings.
Launaseðlar síðustu þriggja mánaða
Útprentun úr heimabanka er fullnægjandi, annars þarf staðfestingu vinnuveitanda. Staðgreiðsla verður að hafa verið greidd af launum. Útlendingastofnun kannar í staðgreiðsluskrá hvort staðgreiðsla hafi verið greidd.
Ef umsækjandi er á framfæri annars einstaklings er heimilt að leggja fram launaseðla þess einstaklings.
Tryggar reglulegar greiðslur til framfærslu
Slíkar greiðslur geta meðal annars verið greiðslur frá Tryggingastofnun vegna örorku, atvinnuleysisbætur, leigutekjur og styrkir sem umsækjandi fær, til dæmis vegna rannsókna. Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða á þeim greiðslum sem hér geta átt við.
Eigið fé
Bankayfirlit sem sýnir fjárhæð inneignar á bankareikningi umsækjanda, hérlendis eða erlendis. Fjárhæðin þarfa að vera í gjaldmiðli sem er alþjóðlega viðurkenndur og hægt að skipta í mynt sem er skráð hjá Seðlabanka Íslands og hægt er að taka út og nýta til framfærslu.
Yfirlitið þarf að vera staðfest af bankanum sjálfum og í frumriti. Útprentun reikningsyfirlits úr heimabanka er ekki fullnægjandi staðfesting.
Upplýsingar um skráningu gjaldmiðla er að finna hjá Seðlabanka Íslands.
Ef umsækjandi er á framfæri annars einstaklings er heimilt að leggja fram bankayfirlit þess einstaklings.
Námsstyrkur eða námslán
Námsstyrkur eða námslán þurfa að vera í gjaldmiðli sem er alþjóðlega viðurkenndur og hægt að skipta í mynt sem er skráð hjá Seðlabanka Íslands. Leggja þarf fram staðfestingu á lánagreiðslum frá viðeigandi lánastofnun og staðfestingu á styrk frá styrkveitanda eftir því sem við á.
Eftirfarandi telst ekki fullnægjandi framfærsla
Greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar ríkis eða sveitarfélags eru ekki trygg framfærsla.
Framfærsla þriðja aðila, í öðrum tilvikum en fram kemur framar í þessari umfjöllun, er ekki trygg framfærsla.
Eignir aðrar en bankainnistæður teljast ekki trygg framfærsla (til dæmis fasteignir).
Arður af fyrirtækjum, vextir eða aðrar greiðslur sem ekki er tryggt hvort eða hvenær eru lausar til útborgunar teljast ekki trygg framfærsla.
Útlendingastofnun er ekki heimilt að veita íslenskan ríkisborgararétt, fyrr en að tilteknum tíma liðnum, ef umsækjandi hefur, hérlendis eða erlendis, sætt sektum eða fangelsisrefsingum eða á ólokin mál í refsivörslukerfinu.
Erlend sakavottorð
Umsækjandi þarf að leggja fram sakavottorð frá öllum ríkjum sem hann hefur verið búsettur í frá 15 ára aldri, sem er sakhæfisaldur á Íslandi.
Mismunandi reglur geta gilt um útgáfu sakavottorða eftir ríkjum. Sé einhver vafi á formi sakavottorðs skal hafa samband við Útlendingastofnun.
Umsækjandi sem hefur verið búsettur í Bandaríkjunum eða Kanada þarf að leggja fram sakavottorð með fingrafaraskráningu.
Athugið að í einhverjum tilfellum geta sakavottorð umsækjenda frá ríkisborgurum ríkja utan EES þegar legið inni hjá Útlendingastofnun. Umsækjandi þarf að kanna það áður en umsókn er lögð inn með því að hafa samband við Útlendingastofnun.
Íslenskt sakavottorð og umsögn lögreglu
Útlendingastofnun óskar eftir sakavottorði og umsögn frá lögreglu. Umsögnin er ítarlegri en sakavottorð þar sem allar þær sektir og refsingar sem einstaklingur hefur hlotið koma fram.
Umsögnin er notuð til að meta hvort umsækjandi uppfylli skilyrðin með tilliti til biðtíma, ólokinna mála í réttarvörslukerfi, samanlagðrar upphæðar sekta og hvort sekt hafi verið greidd að fullu eða fullnustuð með öðrum hætti.
Biðtími vegna brota
Útlendingastofnun er heimilt að veita ríkisborgararétt að liðnum tilteknum biðtíma, ef sekt hefur verið greidd að fullu eða refsing fullnustuð með öðrum hætti og aðrar upplýsingar um umsækjanda mæla ekki gegn því. Fresturinn er mislangur eftir fjárhæð sektar eða lengd fangelsisrefsingar.
Biðtími vegna sekta
Ef umsækjandi hefur hlotið eina sekt lægri en 80.000 kr. er enginn biðtími.
Ef sekt er að fjárhæð 80.000 - 200.000 kr. þarf að vera liðið eitt ár frá því að brot var framið.
Ef sekt er að fjárhæð 200.001 - 300.000 kr. þurfa að vera liðin tvö ár frá því að brot var framið.
Ef sekt er að fjárhæð 300.001 - 1.000.000 kr. þurfa að vera liðin þrjú ár frá því að brot var framið.
Ef sekt er hærri en 1.000.000 kr. þurfa að vera liðin fimm ár frá því að brot var framið.
Biðtími vegna fangelsisrefsingar
Fangelsisrefsing allt að 60 dagar, biðtími 6 ár frá afplánun refsingar eða veitingu reynslulausnar.
Fangelsisrefsing allt að 6 mánuðir, biðtími 8 ár frá afplánun refsingar eða veitingu reynslulausnar.
Fangelsisrefsing allt að 1 ár, biðtími 9 ár frá afplánun refsingar eða veitingu reynslulausnar.
Fangelsisrefsing allt að 2 ár, biðtími 10 ár frá afplánun refsingar eða veitingu reynslulausnar.
Fangelsisrefsing allt að 5 ár, biðtími 12 ár frá afplánun refsingar eða veitingu reynslulausnar.
Fangelsisrefsing allt að 10 ár, biðtími 14 ár frá afplánun refsingar eða veitingu reynslulausnar.
Fangelsisrefsing meira en 10 ár, biðtími 25 ár frá afplánun refsingar eða veitingu reynslulausnar.
Skilorðsbundinn dómur, biðtími 3 ár frá því að skilorðstími er liðinn.
Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið, biðtími 2 ár frá því að skilorðstími er liðinn.
Ákvörðun um skilorðsbundna ákærufrestun, biðtími 1 ár frá því að skilorðstími er liðinn.
Ef umsækjandi hefur verið dæmdur til að sæta öryggisgæslu er biðtími 14 ár frá því að öryggisgæslu lauk.
Þegar talið er að refsing sé úttekin með gæsluvarðhaldi reiknast tíminn frá því að viðkomandi var látinn laus.
Þegar hluti dóms er skilorðsbundinn hefst biðtími þegar afplánun lýkur og miðast hann við lengd óskilorðsbundna dómsins. Það þýðir að lengd biðtíma miðast við þann hluta refsingar sem er óskilorðsbundin, séu tveir mánuðir af þriggja mánaða dómi skilorðsbundnir þýðir það að biðtími miðast við fangelsisrefsingu allt að 60 dögum þó svo viðkomandi hafi raunverulega hlotið þyngri dóm.
Endurtekin brot
Hafi umsækjandi einungis sætt sektarrefsingu og samanlögð fjárhæð sekta er lægri en 200.001 kr., er heimilt að veita íslenskan ríkisborgararétt ef aðrar upplýsingar um umsækjanda mæla ekki gegn því, enda sé liðið að minnta kosti eitt ár frá því að síðasta brot var framið.
Hafi umsækjandi framið fleiri en eitt brot sem ekki eru eingöngu sektir eða samtals fjárhæð sekta fer yfir 200.001 kr., reiknast biðtíminn frá því broti sem síðast var framið eða dómur fullnustaður, en með telst biðtími sem gildir um hvert og eitt brot sem framið hefur verið þar á undan eða eftirstöðvar hans sé hluti biðtímans liðinn.
Ólokin mál
Ef umsækjandi á mál til meðferðar í refsivörslukerfinu er Útlendingastofnun ekki heimilt að veita ríkisborgararétt og verður umsókn þá synjað. Óski umsækjandi eftir að umsókn hans verði tekin til vinnslu á ný þegar meðferð máls er lokið í refsivörslukerfinu er nauðsynlegt að leggja inn nýja umsókn ásamt greiðslu og tilskildum gögnum.
Skilyrði fyrir börn
Til að börn fái ríkisborgararétt með foreldri þurfa þau að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Vera yngra en 18 ára
Ógift
Búsett hér á landi
Í forsjá þess foreldris sem sækir um íslenskt ríkisfang
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun