Notkun kennitalna og persónuvernd
Í sumum tilvikum eru gerðar kröfur um skráningu á kennitölum einstaklinga. Þetta getur til dæmis átt við þegar einstaklingur bókar tíma hjá lækni, á snyrtistofu eða ef stofnað er til hvers konar viðskiptasambands við fyrirtæki.
Í persónuverndarlögum kemur fram að notkun kennitölu er einungis talin heimil ef hún á sér málefnalegan tilgang og er nauðsynleg til að tryggja örugga persónugreiningu.
Persónuvernd getur bannað eða fyrirskipað notkun kennitölu en almennt þarf ekki leyfi frá Persónuvernd til að nota kennitölur.
Málefnalegur tilgangur
Við mat á því hvort tilgangurinn er málefnalegur ber meðal annars að líta til þess hvort örugg persónugreining sé mikilvæg fyrir einstaklinginn, fyrir þann sem notar kennitöluna eða vegna almannahagsmuna.
Kröfunni um málefnalegan tilgang verður ekki fullnægt nema önnur auðkenni, svo sem nafn, heimilisfang eða viðskiptanúmer, séu ófullnægjandi.
Dæmi um málefnalegan tilgang fyrir notkun kennitölu:
Sem dæmi um málefnalegan tilgang fyrir notkun kennitölu má nefna lánaviðskipti eða annars konar viðskiptasamband þar sem samningsaðilum er nauðsynlegt að tryggja örugga persónugreiningu viðsemjenda sinna, meðal annars vegna einhvers konar áhættu sem felst í viðskiptunum.
Að sama skapi getur það talist ómálefnalegt að óska eftir kennitölu í staðgreiðsluviðskiptum enda felst öllu jafna engin áhætta í slíkum gerningum sem krefst persónugreiningar.
Nauðsyn til að tryggja örugga persónugreiningu
Ásamt kröfunni um málefnalegan tilgang þarf sá sem hyggst gera kröfu um skráningu á kennitölu að sýna fram á að það sé nauðsynlegt til að tryggja örugga persónugreiningu, það er, að hægt sé tengja tilteknar upplýsingar við þann sem upplýsingarnar varða.
Notkun kennitölu getur verið nauðsynleg til að tryggja að upplýsingum einstaklinga sé ekki ruglað saman og getur hún þannig stuðlað að því að upplýsingar séu öruggar og áreiðanlegar.
Notkun kennitölu er til að mynda mjög mikilvæg á heilbrigðisstofnunum til að tryggja að unnið sé með réttar upplýsingar um sjúkling.