Réttur til að mótmæla notkun persónuupplýsinga
Andmælaréttur
Réttur til að mótmæla veitir einstaklingi heimild til að koma í veg fyrir að persónuupplýsingar verði notaðar eða unnar í ákveðnum tilgangi.
Afgreiðslutími
Fyrirtæki eða stofnun verður að bregðast við eins fljótt og hægt er og ekki seinna en 1 mánuði frá því að beiðnin barst.
Við ákveðnar aðstæður má lengja frestinn um 2 mánuði. Í þessu tilviki verður að upplýsa viðkomandi:
innan 1 mánaðar frá beiðni
um hvers vegna það er seinkun
rétt til að leggja fram kvörtun til Persónuverndar.
Réttur til að mótmæla notkun persónuupplýsinga
Einstaklingur getur mótmælt vinnslu persónuupplýsinga við ákveðnar aðstæður:
Markaðssetning
Ávallt er hægt mótmælt notkun persónuupplýsinga í beinni markaðssetningu. Þetta á við hvort sem markaðssetningin er byggð á lögmætum hagsmunum, samþykki eða öðrum grunni. Þegar mótmælt er þarf fyrirtækið tafarlaust að hætta allri vinnslu tengdri markaðssetningu.
Lögmætir hagsmunir
Ef persónuupplýsingar eru unnar á grundvelli „lögmætra hagsmuna“ fyrirtækis eða stofnunar, getur einstaklingur mótmælt þeirri vinnslu. Hins vegar getur fyrirtækið haldið áfram með vinnsluna ef það getur sýnt fram á yfirgnæfandi lögmæta ástæðu fyrir vinnslunni sem vegur þyngra en réttindi einstaklingsins og frelsi.
Opinber verkefni
Ef vinnslan er gerð í þágu opinberra verkefna eða vegna opinbers valds, er hægt að mótmælt vinnslunni.
Bannskráning og bannmerking
Ekki má hafa samband við einstaklinga vegna markaðsetningar sem eru:
Þá er bannað að hringja, senda SMS og tölvupóst við markaðssetningu ef ekkert viðskiptasamband er á milla aðila.
Einstaklingar eiga alltaf rétt á að mótmæla þó viðskiptasamband sé fyrir hendi.
Undantekning
Persónuvernd hefur litið svo á að ekki sé hægt að gera kröfu til sendanda markaðsefnis að bera saman við bannskrá þegar:
markaðssetningarefni er beint að starfsmanni fyrirtækis, og sendandi er eingöngu með nafn viðkomandi starfsmanns undir höndum.
Ábyrgð fyrirtækja og stofnanna
Ábyrgðaraðili er sá sem vinnur með upplýsingarnar.
Ábyrgðaraðili þarf að kanna hvort viðkomandi einstaklingur hafi með tilkynningu til Þjóðskrár eða bannmerkingu í símaskrá, andmælt notkun á nafni sínu við markaðssetningu.
Ábyrgðaraðili má afhenda félaga-, nemenda-, starfsmanna- eða viðskiptamannaskrár til nota við beina markaðssetningu ef hann hefur gefið einstaklingum kost á að andmæla því að nafn hans verði á skránni. Afhending gagna má þó ekki fara gegn félagssamþykktum eða starfsreglum sem gilda hjá ábyrgðaraðila.
Eftirlit
Persónuvernd og Þjóðskrá hafa eftirlit með því að aðilar í markaðssetningu virði bannmerkingu í þjóðskrá.
Fjarskiptastofa hefur eftirlit með að aðilar virði bannmerkingu (x-merkingu) í símaskrá.