Fara beint í efnið

Grunnþjónusta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd

Húsreglur fyrir búsetuúrræði

Í neyð

Það er hægt að hafa samband við öryggisvörðinn í þínu húsnæði allan sólarhringinn.

Virðing

Sýndu öðru heimilsfólki og starfsfólki virðingu. Öll ógnandi hegðun og ofbeldishegðun er tilkynnt til lögreglu.

Ekki leyfilegt

  • Reykja eða nota rafrettur.

  • Áfengisneysla og eiturlyfjaneysla.

Kyrrð og ró

Það er kyrrðartími frá klukkan 10 á kvöldin til klukkan 8 á morgnana.

Engar myndatökur eða upptökur

Ljósmyndir, myndbönd og hljóðupptökur af heimilisfólki eða starfsfólki eru ekki leyfðar án leyfis viðkomandi.

Lokum dyrum

Dyr eiga alltaf að vera lokaðar.

Þrífum og hendum ruslinu

Það er á þína ábyrgð að halda herberginu þínu hreinu og snyrtilegu. Rusl á að fara í ruslaföturnar sem eru fyrir utan húsið.

Viðurlög

Brot á þessum reglum geta haft í för með sér viðvörun eða frádrátt frá fæðispeningum.

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun