Greiðsluþátttaka vegna kaupa á gleraugum eða linsum fyrir börn
7 til 12 ára
Börn 7 til 12 ára eiga rétt á endurgreiðslu árlega.
Upphæðir
Upphæð endurgreiðslu fer eftir tegund og styrk glerja. Endurgreiðsla er aldrei hærri en helmingur verðs á keyptum glerjum.
Styrkur
með eða án sjónskekkju minni en 2
0,25 til 4 er 5000 krónur á hvert gler
4,25 til 6 er 7500 krónur á hvert gler
6 cyl eða meira er 10.000 krónur á hvert gler
Tvískipt eða margskipt gler
með eða án sjónskekkju minni en 4
0 til 4 er 13.000 krónur á hvert gler
4,25 eða meira er 25.000 krónur á hvert gler
Sterk sjónskekkjugler
Cylinder -2,25 eða meira er til viðbótar 750 krónur á hvert gler
Prismagler
2000 krónur til viðbótar hvert gler
Harðar linsur
7000 krónur á hvert stykki
Hægt er að velja um linsur eða gler. Ef linsur verða fyrir valinu má safna saman kvittunum yfir tímabilið þar til hámarki er náð.
Þjónustuaðili
SjónstöðinÁbyrgðaraðili
Sjónstöðin