Evrópska sjúkratryggingakortið veitir korthafa rétt til heilbrigðisþjónustu í öðrum EES löndum, Bretlandi og Sviss. Korthafi greiðir þá sama gjald fyrir heilbrigðisþjónustuna og þeir sem eru tryggðir í almannatryggingakerfi viðkomandi lands. Kortið gildir aðeins hjá opinberum heilbrigðisþjónustuveitendum, ekki á einkastofum.
Dæmi:
Ef manneskja þarfnast innlagnar á sjúkrahús innan EES meðan á ferðalagi erlendis stendur og framvísar evrópska sjúkratryggingakortinu þá er eingöngu sjúklingshlutinn greiddur.
Ef einstaklingur framvísar ekki evrópska sjúkratryggingakorti þá getur ein nótt á sjúkrahúsi erlendis orðið mjög kostnaðarsöm. Hægt er að sækja um greiðsluþátttöku þegar heim er komið.
Kortið gildir almennt í þrjú ár í senn en fimm ár fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Sækja má um nýtt kort þegar 6 mánuður eru eftir af gildistíma núgildandi korts.
Glatast kortið innan gildistímans má sækja um rafrænt evrópskt sjúkratryggingakort sem gildir í 3 mánuði.
Réttindi
Hverjir eiga rétt á evrópska sjúkratryggingakorti?
Ríkisborgarar EES landa, Bretlands eða Sviss sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi
Makar og börn ríkisborgara EES landa, Bretlands og Sviss sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi
Hverjir eiga ekki rétt á evrópska sjúkratryggingakorti?
Einstaklingum með ríkisfang utan EES landa, sem eru ekki aðstandendur EES ríkisborgara, er bent á sækja um tryggingayfirlýsingu.
Umsóknarferli
Einstaklingar sækja um kortið, kortið er sent á lögheimili umsækjanda og tekur 10-14 virka daga fyrir kortið að berast.
Gildistími korts
Evrópska sjúkratryggingakortið gildir almennt í þrjú ár í senn eða fimm ár fyrir elli- og örorkulífeyrisþega og fæst ekki endurútgefið á gildistíma.
Hægt er að sækja um nýtt evrópska sjúkratryggingakort þegar 6 mánuðir eða minna eru eftir af gildistíma.
Kortið fellur úr gildi ef korthafi telst ekki lengur sjúkratryggður á Íslandi til dæmis vegna brottflutnings eða vinnu erlendis.
Óheimilt er að nota kort sem fallið er úr gildi að viðlagðri ábyrgð.
Rafrænt evrópskt sjúkratryggingakort
Sótt er um rafrænt evrópskt sjúkratryggingkort í gegnum Ísland.is.
Einstaklingur þarf að vera með evrópskt sjúkratryggingakort í gildi til að geta sótt um rafrænt evrópskt sjúkratryggingakort.
Hægt er að niðurhala rafræna kortinu í umsóknarferlinu en kortið birtist einnig í stafrænu pósthólfi Ísland.is.
Rafræn kort barna birtast í stafrænu pósthólfi barnsins.
Forsjáraðilar geta nálgast pósthólf barna með því að skipta um notanda efst í hægra horninu.
Gildistími rafræna kortsins er 3 mánuðir.
Rafræn kort eru meðal annars hentug þegar
evrópska sjúkratryggingakortið glatast
sækja þarf um evrópskt sjúkratryggingakort með stuttum fyrirvara
Tekið skal fram að evrópska sjúkratryggingakortið tryggir ekki heimflutning til Íslands vegna veikinda. Hægt er að kaupa ferðatryggingu hjá tryggingarfélögum sem ná til heimflutnings.
Evrópska sjúkratryggingakortið

Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar