Skip to main content

The Ísland.is App

Directorate of Health Frontpage
Directorate of Health Frontpage

The Directorate of Health

This news article is more than a year old

21st March 2019

Upp er kominn sá orðrómur að ekki megi gefa bóluefni gegn mislingum (M-M-RVAXPRO) á sama tíma og önnur bóluefni.

Lit ISL ENG Stort

Upp er kominn sá orðrómur að ekki megi gefa bóluefni gegn mislingum (M-M-RVAXPRO) á sama tíma og önnur bóluefni. Sóttvarnalæknir vill árétta að samkvæmt fylgiseðli með bóluefninu þá má gefa MMR bóluefnið á sama tíma og öll önnur bóluefni hvort sem þau eru lifandi (t.d. hlaupabólubóluefni) eða dauð en öll önnur bóluefni í almennum bólusetningum á Íslandi eru dauð.

Einungis ef ekki er hægt að gefa annað lifandi bóluefni á sama tíma þá þarf að líða a.m.k. 1 mánuður á milli. Þetta gildir hins vegar ekki um dauð bóluefni.

Sóttvarnalæknir