Skip to main content

The Ísland.is App

Directorate of Health Frontpage
Directorate of Health Frontpage

The Directorate of Health

This news article is more than a year old

8th June 2018

Þann 6. júní síðastliðinn samþykkti Alþingi breytingu á lögum um brottnám líffæra, nr. 16/1991. Breytingin er á þann veg að allir þegnar verða sjálfkrafa líffæragjafar við andlát hafi þeir ekki áður lýst sig andvíga líffæragjöf.

Lit ISL ENG Stort

Þann 6. júní síðastliðinn samþykkti Alþingi breytingu á lögum um brottnám líffæra, nr. 16/1991. Breytingin er á þann veg að allir þegnar verða sjálfkrafa líffæragjafar við andlát, hafi þeir ekki áður lýst sig andvíga líffæragjöf.

Embætti landlæknis fagnar þessari lagabreytingu og er Ísland þar með að stíga sama skref og allflestar aðrar þjóðir í Evrópu sem byggja löggjöf sína um líffæragjafir á ætluðu samþykki.

Samtímis breyttri löggjöf er mikilvægt að auðvelda þeim sem þess óska að skrá vilja sinn á einfaldan hátt í rafrænan miðlægan gagnagrunn Heilsuveru undir Mínar síður.

Embætti landlæknis mun vinna að breytingum á vefsvæði Heilsuveru og verða þær breytingar kynntar frekar áður en lögin taka gildi 1. janúar 2019.