Heimilt er að dreifa ösku látinna utan kirkjugarðs hafi það verið ósk hins látna.
Skilyrði fyrir dreifingu á ösku
Ákveðin skilyrði eru fyrir því að dreifing á ösku megi fara fram:
Aðeins má dreifa ösku yfir öræfi og sjó
Ösku má aðeins dreifa á einum stað
Ekki má merkja eða auðkenna stað sem ösku var dreift á
Ef dreifa á ösku á landi getur afgreiðsla umsókna tekið nokkurn tíma þar sem það getur þurft að leita upplýsinga um staðhætti. Góð aðferð við staðarval er að nota Google Earth.
Upplýsingar sem þurfa að fylgja umsókn
Þegar umsókn um dreifingu á ösku er send, þarf að liggja fyrir vilji hins látna, hvort sem viðkomandi hefur tjáð það skriflega eða með öðrum hætti. Ef ekki er til slík yfirlýsing, þá þurfa nánustu aðstandendur hans að gefa yfirlýsingu um að það hafi verið ósk hins látna að öskunni verði dreift. Það er nægilegt að maki gefi yfirlýsinguna, en ef börn hins látna eru umsækjendur, þá þarf meirihluti þeirra að standa að umsókninni.
Upplýsa þarf um staðsetningu og staðhætti þar sem fyrirhugað er að dreifa öskunni. Ef það á að dreifa henni á landi þarf staðsetningin að vera nokkuð nákvæm.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum varðandi umsóknina er hægt að hafa samband við truoglif@syslumenn.is
Leyfi og dreifing
Ef skilyrði og upplýsingar sem fylgja eru fullnægjandi veitir sýslumaður leyfið og dreifing getur farið fram. Duftkerið er varðveitt hjá Bálstofu Íslands þar til að dreifingu öskunnar kemur.
Þegar búið er að dreifa ösku skal duftkeri skilað til Bálstofunnar í Reykjavík til eyðingar. Einnig þarf að fylla út staðfestingu um að dreifing ösku hafi farið fram.
Ef þú ert ekki með rafræn skilríki má nálgast umsókn á pdf formi hér
Upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga við meðferð umsókna hjá sýslumönnum
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra