Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Búsforræðisvottorð

Búsforræðisvottorð er vottorð um að viðkomandi aðili er ekki í gjaldþrotaskiptameðferð hjá héraðsdómstólunum.

Búsforræðisvottorð eru gefin út af héraðsdómstólunum. Í þeim tilfellum þar sem bú umsækjanda er til gjaldþrotaskiptameðferðar eða þörf er á nánari upplýsingum, þarf að hafa samband við héraðsdómstól þar sem viðkomandi einstaklingur á lögheimili. Sjá nánari upplýsingar um héraðsdómstólana.

  • Útgáfa vottorðsins kostar 2.500 kr.

Umsóknaferli

Búsforræðisvottorð fyrir einstaklinga

Búsforræðisvottorð fyrir félög

  • Vinsamlegast athugið að ef sótt er um í nafni fyrirtækis þarf prókúruhafi fyrirtækisins að sækja um, nálgast má upplýsingar um prókúruskráningu hjá Skattinum.

Þjónustuaðili

Dómstólar