Stafrænt Ísland: Mínar síður
Hvernig kemst ég inn á mínar síður fyrirtækis þegar eldri mínar síður hafa verið lokaðar?
Aðgangsstýring á nýjum mínum síðum er notendavæn og auðveld í notkun, þar eru prókúrurhafar fyrirtækja sjálfkrafa með aðgang að gögnum fyrirtækja.
Einstaklingar með prókúru fyrirtækis skrá sig inn með sínum rafrænu skilríkjum þar sem hægt er að skipta yfir á fyrirtæki eða önnur umboð. Þú finnur fyrirtækið undir nafninu þínu í efra hægra horni á mínum síðum.
Ef fyrirtækið birtist ekki þarf að athuga skráningu prókúrhafa hjá Skattinum.
Einstaklingar með Íslykil fyrirtækja er bent á að prókúruhafar fyrirtækja geta veitt einstaklingum aðgang að nýjum mínum síðum - Leiðbeiningar.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Stafrænt Ísland