Skráning á lista skipulagsráðgjafa
Skipulagsstofnun heldur úti lista yfir skipulagsráðgjafa, sem heimilt er að vinna skipulag. Uppfylla þarf ákveðin skilyrði um menntun og/eða starfsreynslu til að sinna gerð skipulagsáætlana en þau eru tilgreind í 7. grein skipulagslaga.
Skipulagsráðgjafi þarf að uppfylla eitt af eftirfarandi skilyrðum:
Vera skipulagsfræðingur með heimild ráðherra.
Vera arkitekt, byggingafræðingur, landslagsarkitekt, tæknifræðingur eða verkfræðingur með heimild ráðherra og uppfylla annað af eftirfarandi skilyrðum:
Hafa sérhæft sig í námi á sviði skipulagsmála.
Starfað á sviði skipulagsmála í að lágmarki tvö ár
Skipulagsstofnun fer eftir verklagsreglum við mat á umsóknum um skráningu á lista yfir viðurkennda skipulagsráðgjafa.
Þeir aðilar sem uppfylla framangreind skilyrði geta óskað eftir skráningu á lista Skipulagsstofnunar, yfir þá sem heimilt er að sinna gerð skipulagsáætlana.
Umsókn
Umsókn ásamt eftirfarandi fylgögnum þarf að skila með tölvupósti til Skipulagsstofnunar.
Staðfesting á heimild ráðherra til starfsheitis samkvæmt lögum, nr. 8/1996 um löggildingu nokkurra starfsheita í tækni- og hönnunargreinum.
Ef sótt er um vegna sérhæfingar:
Í námi: staðfest yfirlit yfir nám með námskeiðslýsingum.
Í starfi: staðfest yfirlit yfir starfsreynslu og helstu skipulagsverkefni, ásamt lýsingu á hlutverki umsækjanda í þeim verkefnum.