Eigendaskipti á vinnuvélum á að tilkynna til Vinnueftirlitsins.
Seljandi hefur ferlið með því að smella á „Sækja um“ hér að ofan
Eigandi eða umráðamaður getur einnig skráð sig inn á mínar síður á Island.is og valið „Eignir“ og svo „Vinnuvélar“ og hafið ferli við eigendaskipti þar.
Þegar seljandi hefur stofnað til eigendaskipta fær kaupandi áminningu um að fara inn á Island.is og samþykkja skráninguna. Að því loknu er vinnuvélin skráð á nýjan eiganda.
Verði eigendaskiptin ekki samþykkt innan sjö daga gengur skráningin til baka og seljandinn fær gjaldið vegna eigendaskiptanna endurgreitt.
Seljandi
Skráir sig inn á Island.is með rafrænum skilríkjum
Skráir eigendaskiptin
Greiðir gjaldið með korti
Kaupandi
Fær tölvupóst/sms um skráninguna
Skráir sig inn á Mínar síður á Island.is og samþykkir skráninguna
Kostnaður
Verð fyrir eigendaskipti vinnuvéla er 4.240 krónur
Þjónustuaðili
Vinnueftirlitið