Fara beint í efnið
Umboðsmaður skuldara Forsíða
Umboðsmaður skuldara Forsíða

Umboðsmaður skuldara

Umboðsmaður skuldara - Ársskýrsla 2021

Heimsfaraldurinn hélt áfram að hafa áhrif á árinu 2021, í þeim skilningi að hluta ársins var skrifstofa embættisins lokuð almenningi vegna sóttvarnaraðgerða stjórnvalda. Fjarvinna starfsmanna var mikið nýtt á árinu og gekk það fyrirkomulag vel.

Samskiptamáti við umsækjendur er almennt rafrænn eða í gegnum síma og hafði því breytt vinnufyrirkomulag og lokun skrifstofunnar engin teljandi áhrif á þjónustu embættisins.

Embættið hyggst jafnframt gera stafræna þjónustu enn betri með því að bjóða upp á sérstakt vefsvæði fyrir umsækjendur, svokallað „mitt svæði“ og er á stefnuskránni að taka það í notkun á næsta ári. Á vefsvæðinu geta umsækjendur átt í samskiptum við embættið, móttekið og sent skjöl og fylgst með stöðu mála.

Ásta S. Helgadóttir

Umboðsmaður skuldara