Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Setjum heilbrigðismálin í forgang – þau varða okkur öll!

29. nóvember 2024

Á morgun fara fram kosningar til Alþingis.

Kosningar og SAk 2024

Í aðdraganda kosninganna stóð SAk fyrir opnum fundum starfsfólks og fulltrúum framboðana þar sem flokkunum gafst kostur á að kynna sig og svara spurningum starfsfólks. Tilgangur fundanna var að vekja athygli á mikilvægi sjúkrahússins og þeirri þjónustu sem það veitir, ásamt því að varpa ljósi á þær áskoranir sem stofnunin stendur frammi fyrir.

Brýn áhersluatriði SAk

Framkvæmdastjórn SAk leggur mikla áherslu á nauðsyn þess að auka fjárframlög til sjúkrahússins til að mæta vaxandi þörf fyrir þjónustu. Aðgangur að sérfræðiþjónustu óháð búsetu er grundvallaratriði sem tryggja þarf í íslenska heilbrigðiskerfinu. Þetta kom skýrt fram í greinaskrifum Hildigunnar Svavarsdóttur, forstjóra SAk, (sjá hér: Er að­gangur að sér­fræðiþjónustu jafnaður ó­háð bú­setu? - Vísir og hér: Upp­bygging heil­brigðisþjónustu á lands­byggðinni: Er það á stefnu­skránni fyrir þessar kosningar? - Vísir) þar sem hún varaði sérstaklega við þeim afleiðingum sem skortur á fjármögnun gæti haft fyrir heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.

Fundir sem þessir eru mikilvægur vettvangur til að efla tengingu stjórnmálafólks við grunnstoðir samfélagsins og stuðla að upplýstri umræðu um heilbrigðismál.

Framkvæmdastjórnin hvetur starfsfólk og almenning allan til að nýta kosningaréttinn til að tryggja að heilbrigðismálin verði í forgrunni næsta kjörtímabils.